Steini Lýðs.
27.01.10 - 07:48
Það blossar annað slagið upp í mér þrá að eignast Baikal einhleypuna rússnesku. Ég veit ekki hvað þetta er annað en að ég notaði þessa byssu þegar ég var að byrja að skjóta fyrir austan. Ég veiddi töluvert af svartfugl með svona byssu. Varð að vísu blár og marinn á öxlinni og stundum á kinninni, ég kenndi veltingnum á bátnum um það. Þessar byssur hafa alltaf verið ódýrar, 10-15 þúsund nýjar og eru það ennþá. Ef þú átt eða veist um einhvern sem á slíkan grip og vill losna við hann leyfðu mér þá að heyra um það.
|
|