Steini Lýðs.    15.02.10 - 02:02
Vaninn

Við erum vani. Ég geri hlutina nánast eins á hverjum degi, fer á fætur á sama tíma, fer af stað í vinnnuna á sama tíma og svo frv. Þegar kemur svo til að breyta t.d að byrja að hreyfa mig þarf að koma því inn í vanann. Ég til dæmis fór að hlaupa sem ég hafði ekki gert síðan ég var krakki. Til þess að koma þessu inn í vanann heyrði ég þyrfti að endurtaka að minnsta kosti í 21 dag til þess að koma þessu inn. Þeð er bara mýmörg dæmi um að rétt áður en að hlutirnir fara að verða skemmtilegir og hreint ómissandi í lífinu að þeim er hætt. Gefðu þér tíma þegar þú vilt breyta ,fáðu ráðleggingu og aðstoð en taktu ákvörðun út frá hvað þér er fyrir bestu. Þetta er þitt líf, njóttu þess
 Til baka