Steini Lýðs.    16.02.10 - 02:21
Það er mikilvægt að sofa vel

Það er mikilvægt að sofa vel því að á meðan svefninum stendur vinnur líkaminn, og þar af leiðandi heilinn, upp orku til þess að takast á við áreitið sem við upplifum yfir daginn. Að sofa vel skiptir því öllu máli fyrir okkur. Þú hefur fundið fyrir því einhverntíman að vera pirraður án sýnilegrar ástæðu en þegar þú skoðar þetta nánar kemur í ljós að svefninn var slæmur. Það er svo oft sem reynt er að ráð niðurlögum kvilla okkar mannanna með lyfjatöku. Lyfin kannski virka fyrst um sinn en fljótlega erum við komin í sama farið og jafnvel verra ástand því að aukaverkanir af lyfjum eru svo slæmar. Aukin matarlyst er ein þeirra og þar af leiðandi þyngdaraukning, þannig að lyf eru sjaldnast að virka ef þau gera það nokkurn tíma. Með heilbrigðu mataræði breytist allt. Líkaminn fær það sem hann þarf í réttum hlutföllum. Svefninn lagast, geðið verður betra, allt verður auðveldara. Ég mæli með því að ef þér líður illa, þú sefur ekki vel eða þú ert ekki ánægð (ur) að þú fáir þér aðstoð við að taka mataræðið í gegn eða þú gerir það sjálf(ur) og metir stöðuna eftir ca mánuð. Ef þú tekur líka hreyfingu með og heldur það út þá er ég þess fullviss að líf þitt verður betra.
 Til baka