Steini Lýðs.
17.02.10 - 03:01
Á veiðum er aðstæður misjafnar. Fuglinn velur sér ekki stað til að koma á þar sem veiðimanninum hentar, samt fyndin pæling. Skurðir eru eins misjafnir og þeir eru margir. Á sumum veiðistöðum er nánast ekkert hægt að fela sig og þá er þetta spurningin hvað þú notar, byrgi eða felunet, jafnvel bara gras. Felubyrgi eru misjöfn en það verður að nota efnið sem er í jarðveginum til þess að fela það. Þá er t.d gras sett á byrgið og það þannig hulið. Þegar það svo snjóar er allt annað landslag og jafnvel felubúningurinn stingur í stúf. Eitt sinn stillti ég upp kvöldinu áður og kom svo út í snjó morguninn eftir, það var heldur afkáralegt, gæsirnar hvítar. Best er að nota siluettur (gervigæsaspjöldin) þegar að það snjóar því snjórinn festist ekki á þeim eins og á skeljunum. Svo er hægt að fá sér galla í hvítu. Þeir hjá ICEFIN hafa verið að selja svona galla. |
|